2006-11-05 01:06:20
|
Sími: 483-4508 Fax: 483-4999 Heimasíða: www.plastmótun.is Netfang: plastmotun@plastmotun.is
Plastmótun ehf. var stofnað af Jóni Hjartarsyni á Læk í Ölfusi fyrir hart nær 20 árum og síðan hafa verið framleiddar ýmsar nytjavörur úr plasti í verksmiðjunni, flestar þeirra eru afrakstur Jóns í samvinnu við ýmsa aðila. Í dag framleiðir plastmótun vörur sem notaðar eru í landbúnaði, fiskvinnslu, byggingariðnaði o.fl. Sú framleiðsluvara sem fólk þekkir einna helst, eru vegstikur á heiðum og svörtu rafgirðingarstaurarnir með gulu töppunum. Árið 2001 var fyrirtækið endurskipulagt og er nú í eigu þriggja barna Jóns ásamt eignarhaldsfélagi Suðurlands. Hjá fyrirtækinu starfa 14 manns og unnið er á vöktum allan sólarhringinn fimm daga vikunnar. Allt hráefni sem Plastmótun vinnur úr er úrgangsplast en talið er að til falli um 16.000 tonn af því árlega hér á landi. Daði hefur átt gott samstarf við Plastmótun og fyrsta rafgirðingin úr plaststauralínu er 7 km fjallgirðing, sem var girt sumarið 1995 á Lambeyrum. Síðan þá hefur hann eingöngu notast við plaststaura þegar bæta hefur þurft inn í girðingar eða girtar hafa verið nýjar.
|